Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Á Mýri er hopp og hí Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 02 febrúar 2012 12:25

_orrabl_t___heimas__u.jpgÞað er nóg um að vera hjá okkur þessa dagana og vikurnar. Fimmtudaginn 9. febrúar höldum við okkar árlega þorrablót og undirbúa börnin sig þannig að þau læra hina ýmsu söngva sem tilheyra þorranum ásamt því að skreyta "víkingahjálma" sem þau verða með á þorrablótinu. Matur verður að sjálfsögðu hefðbundinn þorramatur.

Við höfum svo lokað salnum fyrir hefðbunndinni dagskrá þ.e.a.s. einingakubbar og hreyfistundir þar sem hann er undirlagður búningagerð fram að öskudegi sem verður 22. febrúar. Að vanda hanna börnin sjálf búningana og búa til með dyggri aðstoð kennaranna. Ljóst er að sköpunarkraftur barna og kennara er mikill og þessi búningagerð alltaf nokkuð tilhlökkunarefni. Á öskudag viljum því ekki að börnin komi með búninga að heiman. Rétt er að minna svo á að við tökum gjarnan á móti skemmtilegum efnisbútum til að nota í búninganna. Ónýtt efni er því alls ekki ónýtt fyrir okkur.

Samhliða þessu og okkar hefðbundna starfi þá eru börnin að fræðast sérstaklega um vatn og einhver farin að gera hinar ýmsu tilraunir með vatn til að glöggva sig á því. Eins og fram hefur komið þá er vatn meginþema okkar næsta eina og hálfa árið í grænfánaverkefninu. Í Comeníusarverkefninu höfum við svo verið að lesa Nasredin söguna um ketilinn. Skólinn í Tyrklandi endurskrifaði hana og við fengum svo það hlutverk að myndskreyta söguna sem börnin á öllum deildum gerðu með miklum sóma.

Við minnum svo að lokum á náttfatadaginn sem er á morgun, föstudaginn 3. febrúar. Í skóladagatalinu sem er að finna í flipunum hér að ofan er hægt að skoða og sjá viðburði sem verða á Mýri fram á sumar.

 
Dagur leikskólans mánudaginn 6. febrúar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 30 janúar 2012 12:36

Picture_250.jpgMánudaginn 6. febrúar er dagur leikskólans haldin hátíðlegur í leikskólum landsins. Við á Mýri erum engin undantekning á því og verðum með opið hús hjá okkur og bjóðum foreldra og aðra velunnara barnanna velkomin. Við bjóðum upp á kakó og bakkelsi á öllum deildum og hefst þetta kl. 15:00 hjá okkur eða í nónhressingunni. Við vonumst til að sjá sem flesta foreldra og aðra mæta til okkar. Á vefsíðu Félags leikskólakennara má fræðast lítillega um daginn.

 
Skóladagatalið Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 16 janúar 2012 16:52

Dr.jpgBúið er að setja viðburði, skipulagsdaga og aðra frídaga inn í skóladagatalið hér að ofan. Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur það. Enn á eftir að ákveða dagsetningu fyrir leikritið sem við verðum með niðri í sal í mars eða apríl. Þá höfum við ekki fengið dagsetningu á Sinfoníutónleikana sem elstu börnin fara á í apríl. Einnig eigum við eftir að ákveða hvenær í maí við förum í okkar árlegu sveitaferð. Athugið svo að á þessari önn höldum við tvo skipulagsdaga eftir hádegi eingöngu eða þann 27. janúar og 2. mars. Þessa tvo daga verður leikskólinn lokaður frá kl. 12:30.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 23

Röskun á starfi vegna óveðurs eða öskufalls - Disruption of school operations

Merki grænfánans

Menntaáætlun Evrópusambandsins

Viðburðir


Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Mýri | Skerplugötu 1 | 101 Reykjavík | Sími: 562-5044 og 562-5046 | Póstur | Viðburðir | Fréttir